KORTI Skrá fyrirtækið

Settu stimpilkortið þitt í símann

Vextir eru háir og allt kostar sitt. Hættu að borga fyrir plastkort sem enda í skúffu.

Með Korti hannarðu stimpilkort, klippikort eða aðildarkort sem viðskiptavinir setja í Apple Wallet eða Google Wallet. Þeir þurfa ekkert app og kortið gleymist aldrei heima. Starfsfólkið stimplar eða klippir með því að skanna kortið í síma, og þegar þú breytir kortinu uppfærist það í öllum símum í einu.

Korti opnar á næstu dögum. Skráðu fyrirtækið og við höfum samband.

Ein mínúta, án hljóðs: kortið hannað, birt, stimplað og uppfært.

Eitt kort, þitt útlit

Lógóið þitt, litirnir þínir og mynd sem segir hvað þú gerir. Svona líta kortin út í Apple Wallet.

Stimplar4 af 10
ViðskiptavinurAnna Jónsdóttir
VerðlaunFrír kaffibolli
KQ7M2X9F
StimpilkortKaffihús, bakarí, ísbúðir, rakarastofur og bílaþvottur.
Eftir7 af 10
45678910
ViðskiptavinurAnna Jónsdóttir
Kort10 tímar
R4T8N2KD
KlippikortLíkamsrækt, jóga, klifur, dans og sund.
TegundFélagi
Anna JónsdóttirFélagi síðan 2024
Félagsnúmer1042
Gildir til31. des. 2026
M2Z6Q8WA
AðildarkortStéttarfélög, golfklúbbar, ferðafélög og stúdentafélög.

Dæmi. Fyrirtækin eru skálduð.

Eitt verð, og þú greiðir fyrir kortin sem þú gefur út

Það er frítt að hanna kortið og prófa það á alvöru símum. Mánaðargjaldið byrjar þegar kortin þín fara í loftið.

2.999 kr á mánuði

+ 15 kr á hvert útgefið kort

Kaffihús sem gefur út 100 kort á mánuði greiðir 4.499 kr.

Frítt að prófa
Hannaðu eins mörg kort og þú vilt og settu allt að 25 prufukort í alvöru síma. Þau hætta að virka eftir 7 daga.
Uppfærslur og skannanir: ókeypis
Stimplar, klipp, breytingar á kortinu og skilaboð á lásskjá kosta ekkert aukalega.
Útgefið kort: 15 kr
Telst einu sinni, daginn sem kort er búið til fyrir viðskiptavin. Áfylling á klippikorti kostar það sama og nýtt kort.
Engin binding
Þú getur hætt hvenær sem er. Kort sem eru þegar í símum virka áfram.

Við setjum kortið upp með þér

Á höfuðborgarsvæðinu komum við á staðinn. Annars gerum við þetta saman í síma eða á fjarfundi. Það tekur um hálftíma.

  1. Við hönnum kortið samanMeð lógóinu þínu, litunum og verðlaununum sem þú velur.
  2. Við prentum QR-veggspjaldiðÞað fer við afgreiðslukassann. Viðskiptavinir skanna það og fá kortið í símann.
  3. Starfsfólkið fær skannannHlekkur sem opnast í síma starfsmanns. Ekkert app og enginn aðgangur.
  4. Fyrsti stimpillinnÁ þínum eigin síma, svo þú sjáir hvað viðskiptavinirnir sjá.

Viltu vera með frá fyrsta degi?

Skrá fyrirtækið