Kortið sem gleymist aldrei heima
Korti breytir plast- eða pappírskortinu í stafrænt kort í Apple Wallet og Google Wallet. Dreifið því með hlekk eða QR-kóða við afgreiðslukassann og breytið því svo í öllum símum í einu.
Frítt að hanna og prófa. Þegar kortin fara í loftið greiðið þið 2.999 kr á mánuði og 15 kr fyrir hvert kort sem þið gefið út eða endurnýjið. Viðskiptavinir ykkar þurfa ekki að setja neitt upp.
Ýtið á kortið til að stimpla
Hannið öll kortin ykkar á einum stað
Byrjið á sniðmáti og breytið svo hverju sem er. Hvert kort sýnir þá reiti sem Apple og Google styðja, svo viðskiptavinir sjá nákvæmlega það sem þið hannið.
- StimpilkortTíu stimplar og ellefti kaffibollinn er frír. Þeir birtast um leið og þið skannið.
- AðildarkortNafn, áskriftarleið og gildistími. Endurnýið án þess að prenta nýtt kort.
- KlippikortTíu sundferðir greiddar fyrir fram. Starfsfólk klippir eina í hverri heimsókn og kortið sýnir hvað er eftir.
- GjafakortVæntanlegtInneignin á kortinu lækkar eftir hver kaup.
- AðgöngumiðarHvenær húsið opnar, sæti og strikamerki sem skannast líka án netsambands.
- TilboðTilboð sem gilda einu sinni og falla úr gildi um leið og þau eru notuð.
Lesið nánar um stimpilkort, klippikort og aðildarkort í símanum.
Frá auðu korti í síma á einum eftirmiðdegi
Þrjú skref, og það síðasta heldur áfram: hver breyting sem þið gerið berst í kortin sem eru þegar í veskjum fólks.
Skref 1
Hönnun
Veljið tegund korts, bætið við lógói og litum og veljið reitina. Forskoðunin sýnir bæði Apple Wallet og Google Wallet, nákvæmlega eins og kortið birtist þar.
Skref 2
Birting
Þegar þið birtið kortið fær það sinn eigin hlekk og QR-kóða. Bætið því fyrst við í ykkar eigin síma til að skoða það. Það kostar ekkert að prófa.
Skref 3
Dreifing og uppfærslur
Deilið hlekknum, prentið veggspjald með QR-kóða, sendið kortið í tölvupósti eða SMS, flytjið inn CSV-skrá eða notið API-ið. Þegar eitthvað breytist sendið þið uppfærslu og allir símar fá hana.
Gefið út kort úr ykkar eigin kerfi
Ein beiðni býr til kort fyrir viðskiptavin. Önnur uppfærir það og kortið breytist í öllum símum innan nokkurra sekúndna. Lesa API-skjölunina
const res = await fetch("https://korti.is/v1/passes", {
method: "POST",
headers: {
Authorization: `Bearer ${process.env.KORTI_KEY}`,
"Content-Type": "application/json",
},
body: JSON.stringify({
card: "kaffi-kria-stamps",
customer: { name: "Jón Gunnarsson", email: "jon@example.is" },
values: { stamps: 7 },
}),
});
const pass = await res.json();
// pass.addUrl is "https://korti.is/p/8f3k2q"
// Send it by email or SMS, or show it as a QR code.Kortið sem beiðnin býr til, tilbúið til að bæta við í Apple Wallet eða Google Wallet.
Borgið aðeins fyrir kortin sem þið gefið út
2.999 krá mánuði
+ 15 kr á hvert útgefið eða endurnýjað kort
Mánaðargjaldið byrjar þegar kortin ykkar fara í loftið, ekki fyrr.
7.499 kr á mánuði
2.999 kr á mánuði + 4.500 kr fyrir 300 kort (15 kr á hvert)
- Frítt að hanna og prófaBúið til eins mörg kort og þið viljið og setjið allt að 25 prufukort í síma. Þið þurfið ekki að skrá greiðslukort.
- Virk kort í báðum veskjumStaðfestið fyrirtækið, bætið við greiðslukorti og setjið upp Apple Wallet. Þá fara kortin í loftið í Apple Wallet og Google Wallet í einu.
- Stimplar og skannanir eru innifalinStimplar, breytingar á inneign, skannanir og skilaboð á lásskjá kosta ekkert aukalega. Kort telst þegar það er gefið út eða endurnýjað.
- Hættið hvenær sem erEngin binding. Kort sem eru þegar í veskjum virka áfram og það er áfram hægt að skanna þau.
Apple Wallet: notið ykkar eigin Apple-forritarareikning eða látið Korti gefa út kortin fyrir ykkur eftir tveggja mínútna staðfestingu fyrirtækis. Sjá alla verðskrána eða hvað stafrænt vildarkort kostar miðað við pappír.