Skilmálar
Síðast uppfært 22. október 2026
1. Tilgangur
1.1 Skilmálar þessir gilda um þjónustu Korti ehf., kt. 591026-0380, Skógarási 7, 110 Reykjavík, korti@korti.is („Korti“), sbr. 6. gr. laga nr. 30/2002 um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu. Tilgangur þeirra er að kveða á um skilyrði þess að fyrirtæki fái að nota Þjónustuna til að hanna Apple Wallet- og Google Wallet-kort, gefa þau út og halda þeim uppfærðum, og um réttindi og skyldur Korti og fyrirtækisins vegna hennar.
1.2 Skilmálarnir eru samningur milli Korti og Viðskiptavinar og eru samþykktir fyrir hönd Viðskiptavinar þegar Aðgangur er stofnaður, sbr. 4. gr.
2. Skilgreiningar
- Viðskiptavinur: fyrirtækið sem stofnar Aðgang og er skráð fyrir honum.
- Þjónustan: þjónusta Korti á korti.is og í appi Korti.
- Aðgangur: Korti-aðgangur Viðskiptavinar í Þjónustunni.
- Notandi: sá sem stofnaði Aðganginn eða hefur verið boðið í hann.
- Kort: stafrænt kort (vildarkort, stimpilkort, aðildarkort, gjafakort, afsláttarkort, aðgöngumiði og þess háttar) sem Viðskiptavinur gefur út með Þjónustunni í Apple Wallet eða Google Wallet. Prufukort er Kort samkvæmt 6.1; Virkt Kort er Kort sem er ekki prufukort.
- Að fara í loftið: þegar skilyrðin í 6.4 eru uppfyllt og Kort Viðskiptavinar verða Virk Kort. Hann er í loftinu frá þeim degi.
- Korthafi: sá sem fær Kort frá Viðskiptavini.
- Vörumerkjaefni: nafn Viðskiptavinar, lógó, vörumerki, litir, myndir og annað efni sem Viðskiptavinur hleður upp í Þjónustuna.
- Leið A og Leið B: leiðirnar tvær til að gefa út Kort í Apple Wallet, sbr. 6.3.
- Útgáfusamningur: útgáfusamningur Korti (Leið B), sem Viðskiptavinur undirritar til að nota Leið B.
- Persónuverndarstefna: persónuverndarstefna Korti á korti.is/personuvernd.
- Fyrirtækjaskrá: fyrirtækjaskrá Skattsins.
3. Gildissvið
Skilmálarnir gilda um alla notkun Viðskiptavinar á Þjónustunni. Ef Viðskiptavinur notar Leið B bætist Útgáfusamningur við þá, og ef þeim ber ekki saman gildir Útgáfusamningur framar um útgáfu Korta. Persónuverndarstefna lýsir því hvernig Korti fer með persónuupplýsingar. Skilmálarnir taka ekki til viðskipta Viðskiptavinar og Korthafa eða þess sem Kort Viðskiptavinar lofa Korthöfum; Korti er ekki aðili að þeim.
4. Samþykki og heimild
4.1 Viðskiptavinur ber ábyrgð á því að sá sem samþykkir Skilmálana hafi heimild til að skuldbinda hann, sbr. lög nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga, og á öllu sem Notendur gera í Aðganginum. Korti má treysta því án frekari könnunar, nema Korti viti að heimild skorti.
4.2 Gefi Viðskiptavinur út Virk Kort, greiði fyrir Þjónustuna eða nýti hana á annan hátt telst hann hafa samþykkt Skilmálana.
4.3 Um heimild þess sem undirritar Útgáfusamning fer eftir 6. gr. hans.
5. Aðgangurinn og Notendur
5.1 Eins og stendur geta aðeins fyrirtæki sem eru skráð í Fyrirtækjaskrá og hafa kennitölu stofnað Aðgang.
5.2 Notendur skrá sig inn með innskráningarkóða í tölvupósti eða aðgangslykli.
5.3 Viðskiptavinur getur boðið samstarfsfólki í Aðganginn. Hlutverk ráða því hvað Notendur geta gert:
- (a) eigendur og stjórnendur geta gert allt, þar á meðal breytt hönnun, sent uppfærslur á Kortum og séð um greiðslur, API-lykla og Apple-skírteinið;
- (b) starfsfólk getur skoðað Kort og Korthafa, úthlutað Kortum, skannað og skoðað tölfræði, en ekki breytt hönnun, sent uppfærslur né breytt greiðslum og lyklum.
6. Kort í Apple Wallet og Google Wallet
6.1 Prufukort. Þar til Viðskiptavinur fer í loftið er hvert Kort prufukort í báðum veskjum, undirritað með prufuskírteini Korti, til að prófa í símum Viðskiptavinar sjálfs. Prufukort hætta að virka eftir 7 daga og Viðskiptavinur getur gefið út allt að 25. Ný Kort eru einnig prufukort í þeim tilvikum sem greinir í 10.6 og 13.3.
6.2 Google Wallet. Korti gefur út Kort allra viðskiptavina sinna í Google Wallet undir eigin útgefandareikningi Korti hjá Google, með nafni og lógói Viðskiptavinar. Viðskiptavinur þarf ekki Google-aðgang.
6.3 Apple Wallet. Viðskiptavinur velur aðra af tveimur leiðum:
- (a) Leið A, eigið Apple-skírteini: Virk Kort eru undirrituð með skírteini Viðskiptavinar úr Apple Developer og Viðskiptavinur er útgefandi þeirra.
- (b) Leið B, Korti gefur út fyrir Viðskiptavin: Korti undirritar Apple Wallet-kort Viðskiptavinar með eigin skírteini Korti, fyrir hönd Viðskiptavinar. Til þess undirritar sá sem má skuldbinda Viðskiptavin Útgáfusamning með eigin hendi á PDF-skjal frá Korti, og Viðskiptavinur hleður því upp í Þjónustuna (eða sendir á korti@korti.is). Korti ber kennitölu undirritanda saman við Fyrirtækjaskrá. Ef Fyrirtækjaskrá staðfestir að hann megi skuldbinda Viðskiptavin getur Viðskiptavinur strax gefið út Virk Kort, í mesta lagi 100 meðan starfsmaður Korti fer yfir samninginn. Korti samþykkir hann síðan eða hafnar honum. Ef Korti hafnar honum ógildir Korti, í báðum veskjum, þau Virku Kort sem voru gefin út á meðan, og Viðskiptavinur getur látið annan undirrita eða notað Leið A. Á bakhlið hvers Korts stendur að Korti hafi gefið það út fyrir hönd Viðskiptavinar, sbr. 4.2 Útgáfusamnings.
6.4 Að fara í loftið. Áður en Viðskiptavinur gefur út fyrsta Virka Kortið þarf:
- (a) kennitala hans að standast athugun í Fyrirtækjaskrá (virkur, hvorki gjaldþrota né í slitameðferð);
- (b) greiðslukort að vera vistað í Aðganginum; og
- (c) Apple Wallet að vera sett upp með Leið A, eða með Leið B samkvæmt 6.3 (b).
Þá fer Viðskiptavinur í loftið og Kort hans verða Virk Kort í báðum veskjum í einu.
6.5 Fjöldi Virkra Korta er ótakmarkaður, nema meðan greiðsla er í vanskilum (10.6) og, með Leið B, meðan Útgáfusamningur bíður samþykkis (í mesta lagi 100).
6.6 Apple og Google. Kort birtast í forritum Apple og Google, samkvæmt skilmálum þeirra. Þau mega breyta veskjum sínum og reglum, hafna Kortum eða fjarlægja þau, eða afturkalla skírteini eða aðgang, hvort sem er Viðskiptavinar eða Korti. Með Leið B hefur vandamál með skírteini Korti einnig áhrif á Apple Wallet-kort Viðskiptavinar. Korti ber ekki ábyrgð á truflunum sem Apple eða Google valda. Ekki er hægt að flytja Kort milli Apple-skírteina, svo ef Viðskiptavinur fer úr Leið B í Leið A þurfa Korthafar að bæta við nýju Korti, sbr. 11.4 Útgáfusamnings. Kort verða heldur ekki flutt af útgefandareikningi Korti hjá Google.
7. Efni Viðskiptavinar
7.1 Viðskiptavinur á lógó sín, hönnun og lista yfir Korthafa.
7.2 Viðskiptavinur veitir Korti leyfi til að nota Vörumerkjaefni og annað efni sem hann hleður upp eingöngu til að reka Þjónustuna: til að smíða og undirrita Kort hans, sýna Korthöfum þau og senda þær uppfærslur sem hann biður um. Með Leið B fer um leyfið einnig eftir 5. gr. Útgáfusamnings.
7.3 Korti skimar nöfn og myndir sem er hlaðið upp með tilliti til vörumerkja annarra og getur haldið Korti eftir til yfirferðar.
8. Skyldur Viðskiptavinar
8.1 Notkun. Viðskiptavinur notar Þjónustuna aðeins fyrir raunveruleg Kort fyrir eigin rekstur, og ekki til að:
- (a) setja nafn, lógó eða vörumerki annars fyrirtækis á Kort án leyfis þess;
- (b) blekkja Korthafa, til dæmis um verð, verðlaun eða hver gaf Kortið út;
- (c) senda óumbeðin skilaboð, eða uppfærslur á Kortum sem eru í raun auglýsingar til fólks sem bað ekki um þær;
- (d) brjóta lög, reglur Apple eða Google um veski, eða rétt annarra; eða
- (e) yfirkeyra, rannsaka eða ráðast á Þjónustuna, eða fara fram hjá takmörkunum hennar.
8.2 Réttar upplýsingar. Viðskiptavinur gefur réttar upplýsingar um sig, þar á meðal kennitölu. Nafn hans stendur á hverju Korti sem hann gefur út.
8.3 Aðgangurinn. Viðskiptavinur sér til þess að Notendur gæti vel að tölvupósti sínum og tækjum og fylgi Skilmálunum.
8.4 Efni Korta. Viðskiptavinur ber ábyrgð á efni Korta sinna og ábyrgist að hann eigi nöfnin og lógóin sem hann hleður upp eða hafi leyfi til að nota þau.
8.5 Persónuupplýsingar Korthafa. Viðskiptavinur ákveður hvaða upplýsingum um Korthafa er safnað og í hvaða tilgangi, og ber ábyrgð á því að hafa heimild til að vinna þær samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
8.6 Apple og Google. Kort Viðskiptavinar fylgja reglum Apple og Google um veski. Með Leið A ber Viðskiptavinur ábyrgð á eigin Apple Developer-aðgangi, á því að skírteinið haldist í gildi og á því að fylgja skilmálum Apple. Með Leið B fer um skyldur hans einnig eftir 7. gr. Útgáfusamnings.
8.7 Greiðslur. Viðskiptavinur greiðir gjöld samkvæmt 10. gr.
9. Skyldur Korti
9.1 Korti leggur sig fram um að Þjónustan sé í gangi og að Kort Viðskiptavinar virki, en getur ekki lofað því að hún liggi aldrei niðri.
9.2 Korti notar efni Viðskiptavinar aðeins eins og segir í 7.2.
9.3 Með Leið A leiðir Korti Viðskiptavin í gegnum tengingu Apple-skírteinis hans og varar hann við áður en það rennur út. Ef Apple eða Google breyta veskjum sínum eða reglum, eða grípa til aðgerða sem hafa áhrif á Kort Viðskiptavinar, aðlagar Korti Þjónustuna eins hratt og það getur.
9.4 Korti má bæta og breyta Þjónustunni. Ef Korti fjarlægir eiginleika sem Viðskiptavinur reiðir sig á lætur Korti hann vita með góðum fyrirvara.
9.5 Korti vinnur persónuupplýsingar Korthafa samkvæmt 12. gr.
10. Verð og greiðslur
10.1 Það er ókeypis að hanna og prófa. Þegar Viðskiptavinur er kominn í loftið greiðir hann mánaðargjald, 2.999 kr, auk 15 kr fyrir hvert Kort sem er gefið út eða endurnýjað (sjá 10.3). Verð eru í íslenskum krónum. Sjá verðskrá á korti.is/verd.
10.2 Ekkert mánaðargjald er greitt meðan Viðskiptavinur er í prufu. Gjaldið hefst daginn sem hann fer í loftið. Fyrsti mánuðurinn er reiknaður eftir dögum, og eftir það er fullt gjald greitt fyrir hvern mánuð þar sem Viðskiptavinur er í loftinu einhvern tíma í mánuðinum, líka ef engin Kort eru gefin út.
10.3 Kort telst gefið út þann dag sem það er búið til fyrir Korthafa. Auk þess telst Kort endurnýjað, og kostar það sama og nýtt Kort, þegar:
- a) klippikort er fyllt á,
- b) stimpilkort byrjar nýja umferð eftir að verðlaun eru gefin,
- c) gildistími Korts er lengdur eða felldur niður á Korti sem hafði gildistíma.
Afturkölluð endurnýjun er ekki gjaldfærð. Prufukort eru ekki gjaldfærð.
10.4 Síðasta dag hvers mánaðar skuldfærir Korti vistaða greiðslukortið fyrir mánaðargjaldi og Kortum mánaðarins, setur reikninginn í „Stillingar → Greiðslur“ og sendir hann í tölvupósti sem PDF-skjal. Rapyd annast greiðslurnar; Korti sér aldrei og vistar aldrei fullt kortanúmer.
10.5 Hafnaðar greiðslur. Ef greiðslu er hafnað sendir Korti Viðskiptavini tölvupóst og biður hann að uppfæra greiðslukortið. Korti reynir aftur 3, 7 og 14 dögum eftir fyrstu misheppnuðu skuldfærsluna, og strax þegar nýju greiðslukorti er bætt við.
10.6 Vanskil. Meðan reikningur er ógreiddur getur Viðskiptavinur gefið út í mesta lagi 100 ný gjaldfærð Kort, talið frá fyrstu misheppnuðu skuldfærslunni. Ef reikningurinn er enn ógreiddur 30 dögum eftir þá skuldfærslu verða ný Kort prufukort þar til hann er greiddur. Takmarkanirnar falla niður um leið og Viðskiptavinur greiðir. Kort sem eru þegar í veskjum halda áfram að virka.
10.7 Verðbreytingar. Korti má breyta verði, þar á meðal mánaðargjaldinu, með tilkynningu í tölvupósti með minnst 30 daga fyrirvara. Breyting gildir um Kort sem eru gefin út eftir það, og breyting á mánaðargjaldi frá fyrsta heila mánuði eftir tilkynninguna.
11. Aðgerðir vegna brota
11.1 Ef Viðskiptavinur brýtur gegn 8.1, eða Apple eða Google láta Korti vita að Kort hans brjóti reglur þeirra, má Korti ógilda Kort hans í báðum veskjum (hvaða skírteini sem þau eru undirrituð með), frysta Aðganginn eða loka honum. Korti lætur Viðskiptavin vita fyrst og gefur honum tækifæri til að bæta úr, þar sem það er hægt.
11.2 Ógilt Kort sýnir í síma Korthafa að það er ekki lengur gilt. Frystur Aðgangur getur hvorki úthlutað nýjum Kortum né sent uppfærslur.
12. Vinnsla persónuupplýsinga Korthafa
12.1 Um persónuupplýsingar Korthafa er Viðskiptavinur ábyrgðaraðili og Korti vinnsluaðili hans, sbr. lög nr. 90/2018. Grein þessi er vinnslusamningur aðilanna, sbr. 28. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar (ESB) 2016/679. Persónuverndarstefna lýsir því hvaða upplýsingar Korti vinnur fyrir Viðskiptavin.
12.2 Korti:
- (a) vinnur upplýsingarnar aðeins samkvæmt fyrirmælum Viðskiptavinar, en fyrirmælin eru Skilmálarnir og notkun hans á Þjónustunni;
- (b) heldur þeim leyndum og veitir aðeins þeim aðgang sem þurfa;
- (c) verndar þær með viðeigandi öryggisráðstöfunum, þar á meðal dulkóðun í flutningi og í geymslu fyrir viðkvæma lykla;
- (d) notar aðeins undirvinnsluaðila sem eru taldir upp í Persónuverndarstefnu, og lætur Viðskiptavin vita áður en nýjum er bætt við svo hann geti andmælt;
- (e) aðstoðar Viðskiptavin við að svara beiðnum Korthafa um aðgang, leiðréttingu eða eyðingu;
- (f) lætur Viðskiptavin vita án ótilhlýðilegrar tafar ef Korti verður var við öryggisbrest sem snertir upplýsingarnar; og
- (g) eyðir þeim eða skilar þeim þegar Viðskiptavinur lokar Aðganginum, nema lög krefjist þess að Korti geymi þær.
13. Lok samningssambandsins
13.1 Viðskiptavinur getur hætt að nota Þjónustuna hvenær sem er, og beðið Korti um að eyða gögnum sínum, sbr. Persónuverndarstefnu.
13.2 Lokun Aðgangsins. Til að loka Aðganginum skrifar Viðskiptavinur á korti@korti.is. Hann greiðir fyrir Kort sem hafa verið gefin út fram að lokun og mánaðargjaldið fyrir þann mánuð. Korti eyðir þá gögnum hans eins og lýst er í Persónuverndarstefnu, nema:
- (a) reikningum, sem eru geymdir í sjö ár frá lokum reikningsárs, sbr. lög nr. 145/1994 um bókhald; og
- (b) undirrituðum Útgáfusamningi, sem er geymdur í sjö ár eftir að hann fellur úr gildi, sbr. 9.2 Útgáfusamnings.
Kort sem eru þegar í veskjum halda áfram að skannast en fá ekki lengur uppfærslur, nema annað leiði af 11.3 Útgáfusamnings.
13.3 Áskrift stöðvuð. Til að stöðva mánaðargjaldið velur Viðskiptavinur „Hætta áskrift“ í „Stillingar → Greiðslur“. Mánuðurinn til þessa (Kort og mánaðargjald) er þá skuldfærður, greiðslukortið er fjarlægt og ekkert gjald fellur til eftir það. Ný Kort eru prufukort þar til greiðslukorti er bætt við aftur.
13.4 Korti getur sagt Skilmálunum upp með 30 daga fyrirvara, eða tafarlaust ef Viðskiptavinur brýtur þá alvarlega.
14. Ábyrgð
14.1 Þjónustan er veitt í því ástandi sem hún er. Að því marki sem lög leyfa ber Korti ekki ábyrgð á óbeinu tjóni, svo sem glötuðum hagnaði eða viðskiptasamböndum, og heildarábyrgð Korti á hverju 12 mánaða tímabili takmarkast við það sem Viðskiptavinur greiddi Korti á því tímabili.
14.2 Þetta takmarkar ekki ábyrgð vegna stórkostlegs gáleysis eða ásetnings.
14.3 Viðskiptavinur ber ábyrgð á efni Korta sinna, rétti sínum til nafnanna og lógóanna á þeim, Apple Developer-aðgangi sínum með Leið A, og heimild sinni til að nota persónuupplýsingar Korthafa.
15. Lög og varnarþing
Um Skilmálana gilda íslensk lög. Korti reynir alltaf fyrst að leysa ágreining með því að ræða við Viðskiptavin (korti@korti.is). Ágreiningi vegna Skilmálanna skal annars vísa til Héraðsdóms Reykjavíkur, sbr. 42. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.