Aðildarkortið í símann
Stafrænt aðildarkort er félagsskírteini sem félaginn geymir í Apple Wallet eða Google Wallet. Það sýnir nafn, tegund aðildar og gildistíma. Þegar þið breytið hönnuninni uppfærist kortið í símum allra félaga, og með API-inu uppfærið þið gildistíma hvers félaga þegar árgjaldið er greitt. Korti hentar stéttarfélögum, íþrótta- og golfklúbbum, nemendafélögum, gönguhópum og öllum sem gefa út félagsskírteini eða aðildarkort.
Síðast uppfært 22. okt. 2026.
Svona virkar það
- Þið hannið kortið með lógói félagsins, litum og reitum: nafn félaga, tegund aðildar (til dæmis „Fullgildur“ eða „Nemi“), „gildir til“ og annað sem þið viljið hafa á kortinu.
- Þið gefið kortin út. Hlaðið upp félagaskránni (CSV) og hver félagi með netfang fær sinn hlekk í tölvupósti, eða setjið QR-kóða eða hlekk þar sem nýir félagar skrá sig. Félagakerfi getur líka búið kortin til sjálfkrafa í gegnum API-ið.
- Kortið er sýnt þar sem fríðindin gilda. Í verslun, á viðburði eða við innganginn sýnir félaginn kortið og starfsfólk skannar það. Skanninn sýnir strax hvort aðildin gildir.
- Þið uppfærið það. Breytið hönnun kortsins og sendið uppfærslu til að breyta því hjá öllum félögum. Gildistíma hvers félaga uppfærið þið með API-inu eða í viðskiptavinalistanum. Þegar félagi hættir ógildið þið kortið hans.
Af hverju í símann?
- Engin plastkort. Engin prentun, póstsending eða endurnýjun á hverju ári.
- Alltaf rétt. Gildistíminn breytist í símanum þegar félagakerfið uppfærir hann.
- Bein lína til félaga. Skilaboð á lásskjá um aðalfund, viðburði eða ný fríðindi, án aukakostnaðar.
- Tengist kerfunum ykkar. Opið API og webhooks fyrir félagakerfi. API-skjölunin er á ensku.
Hvað kostar það?
| Að hanna og prófa | Frítt, allt að 25 prufukort sem virka í 7 daga |
|---|---|
| Mánaðargjald | 2.999 kr frá því að kortin fara í loftið |
| Hvert útgefið kort | 15 kr, þegar félaginn fær kortið |
| Nýr gildistími á hverju ári | 15 kr á hvern félaga, því lengri gildistími telst sem endurnýjað kort |
| Aðrar uppfærslur, skannanir, skilaboð á lásskjá | Ókeypis |
Dæmi: félag með 800 félögum greiðir 2.999 kr + 800 × 15 kr = 14.999 kr mánuðinn sem kortin eru gefin út, og eftir það 2.999 kr á mánuði auk 15 kr fyrir hvern nýjan félaga. Þegar gildistími þeirra 800 félaga er framlengdur næsta ár kostar það 800 × 15 kr = 12.000 kr þann mánuðinn, auk mánaðargjaldsins. Að setja gildistíma í fyrsta sinn og að stytta hann kostar ekkert. Sjá verðskrána
Tengið ykkar eigin kerfi
Korti er með opið API. Með því geta kassakerfi, bókunarkerfi, félagakerfi eða vefverslun gefið út kort og uppfært þau sjálfkrafa, til dæmis bætt við stimpli eða breytt inneign. Lesið API-skjölunina (hún er á ensku).
Viljið þið tengja ykkar kerfi við Korti? Við vinnum það gjarnan með ykkur: sendið okkur tölvupóst á korti@korti.is.