Punktakortið í símann
Punktakort er vildarkort þar sem viðskiptavinurinn safnar punktum í stað stimpla, og staðan sést alltaf á kortinu í Apple Wallet eða Google Wallet. Með Korti hannið þið kortið sjálf, ákveðið hvað punktarnir heita og hvað fæst fyrir þá, og starfsfólkið bætir við punktum í síma við afgreiðslukassann. Það þarf ekkert app.
Síðast uppfært 22. okt. 2026.
Svona virkar það
- Þið hannið kortið. Lógó, litir, hvað punktarnir heita (til dæmis „Punktar“ eða „Baunir“) og hvað fæst fyrir þá, til dæmis „500 punktar = frír hádegisverður“. Forskoðunin sýnir kortið eins og það lítur út á iPhone og Android á meðan þið hannið.
- Viðskiptavinir fá kortið. Þeir skanna QR-kóða á veggspjaldi við afgreiðslukassann eða fá hlekk á vefnum, á Instagram eða í tölvupósti. Viðskiptavinurinn ýtir á „Bæta við“ og kortið er komið í veskið.
- Starfsfólkið skráir punkta. Skanninn opnast í vafra á síma eða spjaldtölvu. Starfsmaður skannar kortið, slær inn fjölda punkta og ýtir á „Bæta við“. Ef viðskiptavinurinn notar punkta tekur starfsmaðurinn þá af kortinu á sama stað.
- Kortið uppfærist sjálft. Ný staða birtist á kortinu í síma viðskiptavinarins innan nokkurra sekúndna.
Punktar eða stimplar?
- Stimpilkort hentar þegar allir kaupa svipað, til dæmis kaffibolla eða klippingu. Starfsfólk ýtir á „Stimpla“ og verðlaunin fást þegar kortið er fullt. Lesið um stimpilkort.
- Punktakort hentar þegar kaupin eru misstór, til dæmis í verslun eða á veitingastað. Starfsfólk slær inn fjölda punkta og ýtir á „Bæta við“.
Þið ráðið reglunni sjálf, til dæmis einn punktur fyrir hverjar 100 kr. Korti tengist ekki afgreiðslukerfinu, svo starfsfólkið slær sjálft inn punktana sem kvittunin gefur. Verðlaunatextinn á kortinu segir viðskiptavininum hvað hann getur fengið; Korti athugar ekki hvort punktarnir dugi. Ef þið eruð með eigið kerfi getur það bætt við punktum í gegnum API-ið.
Af hverju í símann?
- Staðan er alltaf sýnileg. Viðskiptavinurinn sér hve marga punkta hann á án þess að spyrja.
- Engin plastkort. Ekkert að prenta, ekkert sem týnist.
- Þið getið sent korthöfum skilaboð. Skilaboð á lásskjá, til dæmis „Tvöfaldir punktar um helgina“, til allra eða hluta korthafa. Skilaboðin kosta ekkert.
- Þið getið breytt kortinu eftir á. Nýtt lógó eða ný verðlaun? Breytið kortinu og það uppfærist í öllum símum.
Fyrir hverja?
Verslanir, veitingastaði, bakarí, bensínstöðvar, bílaverkstæði, gæludýrabúðir, hjólaverkstæði: alla sem vilja umbuna eftir því hve mikið er keypt, ekki bara hve oft fólk kemur.
Hvað kostar það?
| Að hanna og prófa | Frítt. Allt að 25 prufukort sem virka í 7 daga |
|---|---|
| Mánaðargjald | 2.999 kr, byrjar daginn sem kortin fara í loftið |
| Hvert útgefið kort | 15 kr, einu sinni, þegar kortið er búið til fyrir viðskiptavin |
| Punktar, skannanir, uppfærslur, skilaboð á lásskjá | Ókeypis |
| Binding | Engin |
Dæmi: verslun sem gefur út 100 ný punktakort á mánuði greiðir 2.999 kr + 100 × 15 kr = 4.499 kr þann mánuðinn. Kort sem viðskiptavinir eiga þegar kosta ekkert aukalega, sama hve oft punktum er bætt við. Sjá verðskrána
Tengið ykkar eigin kerfi
Korti er með opið API. Með því geta kassakerfi, bókunarkerfi, félagakerfi eða vefverslun gefið út kort og uppfært þau sjálfkrafa, til dæmis bætt við stimpli eða breytt inneign. Lesið API-skjölunina (hún er á ensku).
Viljið þið tengja ykkar kerfi við Korti? Við vinnum það gjarnan með ykkur: sendið okkur tölvupóst á korti@korti.is.