Yfir í efni

Klippikortið í símann

Stafrænt klippikort er klippikort sem viðskiptavinurinn geymir í Apple Wallet eða Google Wallet. Við hverja komu skannar starfsmaður kortið og klippir, og kortið í símanum sýnir strax hve mörg skipti eru eftir. Korti hentar fyrir 10 tíma kort í líkamsrækt, jóga og dansi, sundkort, kort á bílaþvottastöð, hádegismatskort og allt sem er selt í skiptum.

Síðast uppfært 22. okt. 2026.

Svona virkar það

  1. Þið hannið kortið og veljið hve mörg skipti eru á því, til dæmis 10 tímar.
  2. Þið seljið kortið eins og áður, við afgreiðslukassann eða í vefversluninni ykkar, og gefið það út í Korti: viðskiptavinurinn fær hlekk eða skannar QR-kóða og kortið fer í veskið.
  3. Starfsfólkið klippir. Skanninn opnast í vafra á síma eða spjaldtölvu. Starfsmaður skannar kortið, ýtir á „Klippa“ og kortið í símanum sýnir að eitt skipti hefur verið notað.
  4. Áfylling. Þegar kortið er búið kaupir viðskiptavinurinn nýtt. Starfsmaðurinn ýtir á „Selja nýtt kort“ og kortið í símanum fær aftur öll skiptin. Það þarf ekki nýtt kort í símann.

Af hverju í símann?

  • Enginn gleymir kortinu. Það er í sama veski og greiðslukortið.
  • Ekkert þras um hvað er eftir. Fjöldinn sést á kortinu, og í ferli hvers korthafa í Korti sést hvenær hvert skipti var notað og hve mörg eru eftir.
  • Engin plast- eða pappírskort sem þarf að prenta, geyma og endurnýja.
  • Skilaboð á lásskjá, til dæmis þegar tímataflan breytist, án aukakostnaðar.

Hvað kostar það?

Verð á klippikortum hjá Korti
Að hanna og prófaFrítt, allt að 25 prufukort sem virka í 7 daga
Mánaðargjald2.999 kr frá því að kortin fara í loftið
Hvert útgefið klippikort15 kr
Áfylling á klippikorti15 kr, því þá er nýtt klippikort selt, sama hve mörg skipti bætast við
Klipp, skannanir, uppfærslurÓkeypis

Dæmi: líkamsræktarstöð sem selur 60 klippikort og fyllir á 40 í mánuðinum greiðir 2.999 kr + (60 + 40) × 15 kr = 4.499 kr. Sjá verðskrána

Tengið ykkar eigin kerfi

Korti er með opið API. Með því geta kassakerfi, bókunarkerfi, félagakerfi eða vefverslun gefið út kort og uppfært þau sjálfkrafa, til dæmis bætt við stimpli eða breytt inneign. Lesið API-skjölunina (hún er á ensku).

Viljið þið tengja ykkar kerfi við Korti? Við vinnum það gjarnan með ykkur: sendið okkur tölvupóst á korti@korti.is.

Spurningar

Tekur Korti við greiðslu fyrir klippikortið?
Nei. Þið seljið kortið eins og þið gerið í dag og Korti heldur utan um kortið og hve oft er klippt. Þannig þurfið þið ekki að breyta afgreiðslukerfinu.
Hvað gerist þegar öll skiptin eru búin?
Skanninn sýnir að ekkert er eftir á kortinu. Þegar viðskiptavinurinn kaupir nýtt ýtir starfsmaðurinn á „Selja nýtt kort“ og kortið í símanum fær aftur öll skiptin.
Kostar áfylling það sama og nýtt kort?
Já, 15 kr, því áfylling er nýtt klippikort sem er selt. Áfylling telst einu sinni, hve mörg skipti sem bætast við. Það kostar ekkert að klippa.
Getum við flutt núverandi klippikort yfir?
Þið getið búið til kort fyrir hvern og einn viðskiptavin, eða flutt inn lista þeirra (CSV) með nafni, netfangi og símanúmeri, og hver fær sinn hlekk. Kortin byrja með öllum skiptunum og starfsfólk klippir þau skipti sem hafa þegar verið notuð.
Virkar skanninn án nettengingar?
Nei. Skanninn þarf nettengingu til að skrá hvert skipti, svo hver aðgerð fer aðeins í gegn þegar síminn er nettengdur. Ef tengingin dettur út segir skanninn það og þið reynið aftur.

Hannið kortið núna og borgið þegar það fer í loftið

Hannið klippikortið ykkar frítt