Starfsmannakortið í símann
Stafrænt starfsmannakort er kort sem starfsmaðurinn geymir í Apple Wallet eða Google Wallet í stað plastkorts. Það sýnir nafn, starf og gildistíma, og þegar það er skannað sést strax hvort það er í gildi. Í Korti er starfsmannakort aðildarkort með ykkar merkingum: þið setjið „Starfsmaður“ í stað „Félagi“ og veljið tegundina, til dæmis „Sumarstarfsmaður“. Það hentar fyrir starfsmannaafslátt, mötuneyti, sundlaugar og söfn sveitarfélaga, og afslátt hjá samstarfsaðilum.
Síðast uppfært 22. okt. 2026.
Svona virkar það
- Þið hannið kortið. Lógó og litir fyrirtækisins, „Starfsmaður“ fyrir ofan nafnið og tegundin (til dæmis „Fastráðinn“ eða „Sumarstarfsmaður“). Í „Upplýsingar um korthafa“ getið þið bætt allt að sex atriðum á kortið, til dæmis deild eða starfsmannanúmeri.
- Þið sendið kortin út. Hlaðið upp starfsmannalistanum (CSV) með nafni, netfangi og deild, og hver starfsmaður með netfang fær hlekk í tölvupósti. Hann opnar hlekkinn í símanum og ýtir á „Bæta við“.
- Kortið er skannað þar sem það gildir. Í mötuneytinu, í afgreiðslunni eða hjá samstarfsaðila skannar starfsfólk kortið í vafra á síma. Skanninn sýnir stórt „Gilt“ eða „Ógilt“, nafnið og upplýsingarnar um korthafa sem eru á kortinu.
- Þið stjórnið gildistímanum. Kort fyrir sumarstarfsfólk getur runnið út á ákveðnum degi, til dæmis 31. ágúst, og verður þá grátt í veskinu. Ef einhver hættir ógildið þið kortið hans strax.
Samstarfsaðilar skanna líka
Þið getið búið til skannahlekk fyrir hvern stað, til dæmis „Mötuneytið“ eða „Kaffihúsið á horninu“. Hlekkurinn virkar aðeins fyrir starfsmannakortið og getur runnið út á ákveðnum degi. Samstarfsaðilinn þarf ekki aðgang að Korti; hann opnar hlekkinn í síma og skannar. Þið getið afturkallað hlekkinn hvenær sem er.
Af hverju í símann?
- Engin plastkort. Engin prentun, engin plastkort til að endurnýja á hverju tímabili, ekkert sem týnist.
- Alltaf rétt. Skanninn segir hvort kortið er í gildi, svo enginn þarf að bera saman lista.
- Bein lína til starfsfólks. Skilaboð á lásskjá, til dæmis um nýjan afslátt eða lokun mötuneytis, án aukakostnaðar.
- Tengist kerfunum ykkar. Mannauðs- eða launakerfi getur búið til kort, breytt gildistíma og ógilt kort í gegnum API-ið. API-skjölunin er á ensku.
Fyrir hverja?
Hótel og ferðaþjónustufyrirtæki með sumarstarfsfólk, sveitarfélög (sumarstörf, vinnuskóli, frítt í sund og á söfn fyrir starfsfólk), stofnanir með mötuneyti og fyrirtæki sem semja um starfsmannaafslátt hjá öðrum.
Ekki aðgangskort að húsnæði. Hurðarlæsingar lesa NFC-kort, en Korti notar strikamerki. Starfsmannakortið opnar ekki dyr.
Hvað kostar það?
| Að hanna og prófa | Frítt, allt að 25 prufukort sem virka í 7 daga |
|---|---|
| Mánaðargjald | 2.999 kr frá því að kortin fara í loftið |
| Hvert útgefið kort | 15 kr, þegar starfsmaðurinn fær kortið |
| Lengri gildistími | 15 kr, þegar gildistími korts er færður aftar eða fjarlægður, líka til að opna útrunnið kort aftur |
| Skannanir, aðrar uppfærslur, skilaboð á lásskjá | Ókeypis |
| Binding | Engin |
Dæmi: hótel sem gefur 200 sumarstarfsmönnum kort greiðir 2.999 kr + 200 × 15 kr = 5.999 kr mánuðinn sem kortin eru gefin út, og eftir það 2.999 kr á mánuði auk 15 kr fyrir hvern nýjan starfsmann. Ef þið framlengið gildistíma sömu 200 korta kostar það 200 × 15 kr = 3.000 kr í viðbót. Að setja gildistíma í fyrsta sinn og að stytta hann kostar ekkert. Sjá verðskrána
Tengið ykkar eigin kerfi
Korti er með opið API. Með því geta kassakerfi, bókunarkerfi, félagakerfi eða vefverslun gefið út kort og uppfært þau sjálfkrafa, til dæmis bætt við stimpli eða breytt inneign. Lesið API-skjölunina (hún er á ensku).
Viljið þið tengja ykkar kerfi við Korti? Við vinnum það gjarnan með ykkur: sendið okkur tölvupóst á korti@korti.is.