Stimpilkortið ykkar í símann
Stafrænt stimpilkort er stimpilkort sem viðskiptavinurinn geymir í Apple Wallet eða Google Wallet í símanum sínum í stað pappírsspjalds í seðlaveskinu. Með Korti hannið þið kortið í vafra, viðskiptavinir fá það með því að skanna QR-kóða við afgreiðslukassann og starfsfólkið stimplar það með myndavélinni á síma. Það þarf ekkert app.
Síðast uppfært 22. okt. 2026.
Svona virkar það
- Þið hannið kortið. Lógó, litir, hversu marga stimpla þarf og hver verðlaunin eru, til dæmis „Tíu stimplar og ellefti kaffibollinn er frír“. Forskoðunin sýnir kortið eins og það lítur út á iPhone og Android á meðan þið hannið.
- Viðskiptavinir fá kortið. Prentið QR-veggspjald og hengið það upp við afgreiðslukassann, eða deilið hlekknum á Instagram eða í tölvupósti. Viðskiptavinurinn skannar, fyllir út það sem þið biðjið um og bætir kortinu í veskið. Þið veljið hvaða upplýsingar um korthafa þið biðjið um.
- Starfsfólkið stimplar. Skanninn opnast í vafra á hvaða síma eða spjaldtölvu sem er. Starfsmaður beinir myndavélinni að strikamerkinu á kortinu og ýtir á „Stimpla“. Þið getið gefið hverri verslun sinn hlekk á skannann, svo að starfsfólkið þurfi ekki eigin aðgang.
- Kortið uppfærist sjálft. Stimpillinn birtist á kortinu í síma viðskiptavinarins innan nokkurra sekúndna. Þegar kortið er fullt segir skanninn það og starfsmaðurinn ýtir á „Gefa verðlaun“. Þá byrjar kortið aftur á núlli.
Af hverju í símann?
- Kortið gleymist ekki heima. Síminn er alltaf með í för og kortið er á sama stað og greiðslukortið.
- Engin prentun. Engin spjöld sem klárast, týnast eða enda í skúffu.
- Þið getið sent korthöfum skilaboð. Sendið stutt skilaboð á lásskjá, til dæmis um nýjan rétt eða opnunartíma um jólin, til allra korthafa eða til valins hóps, eins og þeirra sem hafa ekki komið lengi. Skilaboðin kosta ekkert.
- Þið getið breytt kortinu eftir á. Nýtt lógó eða önnur verðlaun? Breytið hönnuninni og sendið uppfærslu, þá uppfærast kortin í öllum símum.
- Þið sjáið hverjir koma aftur. Yfirlitið sýnir hve mörg kort eru í veskjum, hve mörg bættust við í vikunni og hve mörg voru skönnuð í dag, og þið sjáið feril hvers korthafa.
Fyrir hverja?
Kaffihús, bakarí, ísbúðir, hárgreiðslu- og snyrtistofur, bílaþvottastöðvar, veitingastaði og verslanir: alla sem nota eða vilja nota stimpilkort til að fá fólk til að koma aftur.
Hvað kostar það?
| Að hanna og prófa | Frítt. Allt að 25 prufukort í Apple Wallet og Google Wallet sem renna út eftir 7 daga |
|---|---|
| Mánaðargjald | 2.999 kr, byrjar daginn sem kortin fara í loftið |
| Hvert útgefið kort | 15 kr, þegar kortið er búið til fyrir viðskiptavin |
| Ný umferð | 15 kr, þegar kortið er fullt, verðlaunin eru gefin og það byrjar aftur á núlli |
| Stimplar, skannanir, uppfærslur, skilaboð á lásskjá | Ókeypis |
| Binding | Engin. Þið getið hætt hvenær sem er |
Dæmi: kaffihús sem gefur út 100 ný stimpilkort á mánuði greiðir 2.999 kr + 100 × 15 kr = 4.499 kr þann mánuðinn. Hvert kort sem fyllist og byrjar nýja umferð telst sem nýtt kort: ef 40 af þeim fylla kortið þann mánuðinn bætast 40 × 15 kr = 600 kr við. Sjá verðskrána
Tengið ykkar eigin kerfi
Korti er með opið API. Með því geta kassakerfi, bókunarkerfi, félagakerfi eða vefverslun gefið út kort og uppfært þau sjálfkrafa, til dæmis bætt við stimpli eða breytt inneign. Lesið API-skjölunina (hún er á ensku).
Viljið þið tengja ykkar kerfi við Korti? Við vinnum það gjarnan með ykkur: sendið okkur tölvupóst á korti@korti.is.